Blogg til stuðnings kennslu ITH 1A2,2A2 3A2, ITF 1A2,2A2 OG 3A2 í Tækniskólanum.
Sunday, January 27, 2013
Tuesday, January 15, 2013
Sunday, January 13, 2013
LITASTJÖRNUSPÁ VOR 2013
Stjörnuspá: Hvaða litur hentar þínu stjörnumerki?
LITASTJÖRNUSPÁ VOR 2013:
Vatnsberinn:
Litur vatnsberans er grænn. Friður og samræmi eru aðaleinkenni græna litarins og hann gefur kærleika og jarðtengir. Í draumum táknar grænn litur peninga.
Fiskurinn:
Litur fisksins er silfurgrár sem felur í sér mikinn styrk og frumleika og hefur hreinsandi áhrif. Þessi silfraða orka tengir mann alheiminum.
Hrúturinn:
Litur hrútsins er hvítur sem er tákn um óeigingjarnan kærleika. Hvítur er einnig tákn um hjálp frá andlegum leiðbeinendum.
Nautið:
Litur nautsins fyrir vorið er ljósgrænn sem ber vott um hugrænan fimleika, vingjarnleika og skilning.
Tvíburinn:
Litur tvíburans er túrkísblár. Honum fylgir heildarsýn og tilfinningalegt samræmi. Hann hefur góð áhrif á þá sem eiga við ójafnvægi að stríða. Hann veitir gleði og birtu og hjálpar til við kynorkuna.
Krabbinn:
Litur krabbans er svartur sem er litur egósins eða hins perónulega vilja. Svart er líka tákn stöðuleika og ábyrgðar.
Ljónið:
Litur ljónsins yfir þetta tímabil er gulur sem er tákn vilja, visku og þekkingar.
Meyjan:
Litur meyjunnar í sumar er appelsínugulur sem táknar lífsgleði, lífskraft, kynorku, innri sveigjanleika, ásamt þeim eiginleika að koma auga á spaugilegur hliðar tilverunnar.
Vogin:
Litur vogarinnar er skærrauður sem táknar vilja og framkvæmdaorku eða jarðbundna orku sem tengist hreyfingu og öllum framkvæmdum.
Sporðdreginn:
Litur sporðdregkans er brúnn sem táknar jarðbundna orku og aðstoðar við að njóta lífsins.
Bogmaðurinn:
Litur bogamannsins er bleikur sem er litur ástar og kærleika. Hann hefur eiginleika til að laða að sér þá persónu sem viðkomandi geðjast að. Góður litur fyrir daður
Steingeitin:
Litur Steingeitarinnar er fjólublár sem veitir viljastyrk, staðfestu og hæfileika til að breyta bæði sjálfum sér og umhverfinu á róttækan hátt.
Kærleikskveðja
Sigga Kling
Subscribe to:
Posts (Atom)